Þverstæðan

Ein af þessum viðjum er þegar ég hef sogast inn í vandamál annarra.. talið mig vera að hjálpa, hlustað og kannski ráðlagt og talið mig geta átt í eðlilega samtali eða flæði um vandamál. Eitt af því sem maður rekur sig síðan á er að þetta er allt í höfðinu á manni ... það er að segja skilningurinn á því að þú getir átt í eðlilegu flæði. Fólk skilur hlutina útfrá sjálfu sér svo mikið er víst en það er líka undir fólki komið að hlusta og breyta af vananum ef það er sífellt að ræða vandamál og hluti sem það festist í. Margar góðar konur hafa þannig áhrif á mig upp á síðkastið að benda mér í sífellu á að hugsa um sjálfa mig. Það er hægara sagt en gert og þrautinni þyngri. Ein flækjan sem ég hef lent í hefur kostað mig vinkonu sem ég sakna í dag en við áttum ótrúlega góð samskipti á Háskóla árum okkar. En maður í hennar lífi hafði þannig áhrif á mig í dag að ég fraus. Fraus í mörg skipti og þegar ég hugsa tilbaka að það var ekki nógu oft sem ég sagði nei. Hafði kjark að segja nei. Umræðan hefur opnast töluvert á síðustu 15 árum um svona hluti. Ég er þakklát fyrir það. Menn og konur hugsa sig þá kannski um áður en fólki er stillt upp við vegg... fólki sem kann ekki að segja nei eða það vilji ekki hlutina. Stundum fá orðin bara ekki út.. 

Það versta er að stundum heldurðu að þú sért orðin nógu gömul í að flækja þig í vandamálum og óhamingju annarra. Þú lítur á þig sem stuðning en  svo þegar á botninn er hvolft þá ertu ekkert annað en tímabundin losun fyrir vandamál ég kem kannski að því síðar. Ég er að mana mig í að losa almennilega um þessar flækjur. 

Ummæli