Færslur

Þverstæðan

Ein af þessum viðjum er þegar ég hef sogast inn í vandamál annarra.. talið mig vera að hjálpa, hlustað og kannski ráðlagt og talið mig geta átt í eðlilega samtali eða flæði um vandamál. Eitt af því sem maður rekur sig síðan á er að þetta er allt í höfðinu á manni ... það er að segja skilningurinn á því að þú getir átt í eðlilegu flæði. Fólk skilur hlutina útfrá sjálfu sér svo mikið er víst en það er líka undir fólki komið að hlusta og breyta af vananum ef það er sífellt að ræða vandamál og hluti sem það festist í. Margar góðar konur hafa þannig áhrif á mig upp á síðkastið að benda mér í sífellu á að hugsa um sjálfa mig. Það er hægara sagt en gert og þrautinni þyngri. Ein flækjan sem ég hef lent í hefur kostað mig vinkonu sem ég sakna í dag en við áttum ótrúlega góð samskipti á Háskóla árum okkar. En maður í hennar lífi hafði þannig áhrif á mig í dag að ég fraus. Fraus í mörg skipti og þegar ég hugsa tilbaka að það var ekki nógu oft sem ég sagði nei. Hafði kjark að segja nei. Umræðan he...

Ástæðan

  Ætli ég sé ekki að fara inn í minn besta tíma ..Vatnsberatímabilið. Ég hef óbilandi trú á því eftir að ég áttaði mig á orkunni og ruglinu sem fylgir því að vera í þessu góða merki að þetta væri topptímabil á þessum 12 mánuðum sem árið spannar. Plánetan er Úranus... samt að einhverju leyti Satúrnus en henni fylgir víst þyngsli en Úranus er meira flippaður og laus við strengi og viðjur sem halda manni niðri bæði í hugsunum og gjörðum.. það er einmitt ástæðan fyrir þessum skrifum að ég ætla að reyna losa mig við strengi og viðjur sem hafa verið að koma óboðnar inn í líf mitt bara henda þessu  öllu út og leyfa því helst ekki að koma aftur. Þegar fólk opnar sig og lítur yfir farin veg og segir frá þá er það einlægni og sýn á andlegt þel og mannlega sjálfið... bara eins og við erum gerð. Sumum finnst það asnalegt eða feik... það er einmitt partur af þessum strengjum ... sem er erfitt að klippa á. Hér ætla ég að skera og græða og vaxa á ný.