Ástæðan

 

Ætli ég sé ekki að fara inn í minn besta tíma ..Vatnsberatímabilið. Ég hef óbilandi trú á því eftir að ég áttaði mig á orkunni og ruglinu sem fylgir því að vera í þessu góða merki að þetta væri topptímabil á þessum 12 mánuðum sem árið spannar. Plánetan er Úranus... samt að einhverju leyti Satúrnus en henni fylgir víst þyngsli en Úranus er meira flippaður og laus við strengi og viðjur sem halda manni niðri bæði í hugsunum og gjörðum.. það er einmitt ástæðan fyrir þessum skrifum að ég ætla að reyna losa mig við strengi og viðjur sem hafa verið að koma óboðnar inn í líf mitt bara henda þessu  öllu út og leyfa því helst ekki að koma aftur. Þegar fólk opnar sig og lítur yfir farin veg og segir frá þá er það einlægni og sýn á andlegt þel og mannlega sjálfið... bara eins og við erum gerð. Sumum finnst það asnalegt eða feik... það er einmitt partur af þessum strengjum ... sem er erfitt að klippa á. Hér ætla ég að skera og græða og vaxa á ný. 

Ummæli